Nú er ég næstum búin að vera í París í viku og líst rosalega vel á borgina! Þó ég hafi ekki haft neinn tíma ennþá til að skoða hana almennilega. Búið að vera rosalega mikið að gera alveg síðan ég kom. Er ennþá að venjast þessu. En þetta er rosalegt stress og álag, erfiðara heldur en ég hafði ímyndað mér. En síðan ég kom er ég búin að powerwalka 7-9 tíma um París á dag!! Þar sem ég er ekki vön að hlaupa um svona og stressa mig held ég að líkaminn minn sé í einhverju hálfgerðu sjokki. En stelpurnar sem ég bý með segja að þetta sé svona fyrst og svo venjist þetta með tímanum, sem það náttúrlega gerir. Var búin að hlakka til að geta slappað aðeins af um helgina og skoðað París en svo fékk ég að vita áðan að ég þarf að fara í myndatöku laugard. og sunnud. :-/ Ætla samt að kíkja aðeins með stelpunum í second hand búðirnar á morgun, en þær eiga víst að vera geðveikar hérna og frekar ódýrar!! Get ekki beðið!!
Rue Du Laos, gatan sem ég bý á. Emma sem ég bý með (Minnir mig stundum á Lily Cole!?) Okkur brá frekar mikið þegar við sáum konuna í dag skera í dauðu kanínurnar! Svo geng ég sjálf um með kanínu um hálsinn :-( mmm....
Lag vikunnar:
3 comments:
edda sif
said...
frábært að þú sért komin til Parísar. Er skrifstofan góð sem þú ert hjá ??? Njóttu tímans vel þessi borg er æðisleg. Ég er einmitt að fara í febrúar og verð í mánuð, ég er orðin frekar spennt. Gangi þér ótrúlega vel skvís :)
Já þetta er fín skriftstofa :-) Hvað ertu að fara að gera í París? Ef ég ákveð að fara aftur eftir áramót gæti verið gaman að hittast. En já það er rosa gaman í París, góð stemning og flott borg!
3 comments:
frábært að þú sért komin til Parísar. Er skrifstofan góð sem þú ert hjá ??? Njóttu tímans vel þessi borg er æðisleg. Ég er einmitt að fara í febrúar og verð í mánuð, ég er orðin frekar spennt. Gangi þér ótrúlega vel skvís :)
Já þetta er fín skriftstofa :-) Hvað ertu að fara að gera í París?
Ef ég ákveð að fara aftur eftir áramót gæti verið gaman að hittast. En já það er rosa gaman í París, góð stemning og flott borg!
ég er að fara með skólanum á fashion week :) já það væri mjög gaman að hittast ef þú verður á staðnum :)
Post a Comment