Thursday, December 10, 2009

10/12/2009

Champs Elysées er svo jólalegt núna, ætlum á risa jólamarkað þar bráðlega!
1. Emma hálfsofandi í Metronum.. 2.Verkefni fyrir April77, veit nú ekki alveg hvað mér finnst um leðurbuxurnar ennþá.. 3. Skemmtilegheit um helgina :-)



Saturday, December 05, 2009

Bonjour!

Mér finnst ein af bestu leiðunum til að skoða sig um á nýjum stað vera að taka metro á einhvern stað og labba um og sjá hvert það leiðir mann. En það er akkúrat það sem ég gerði í dag. Hafði ekki hugmynd hvert ég var að fara en sá fullt af skemmtilegum hlutum. París er nú heldur ekki það stór að maður rati ekki heim til sín aftur :-)

Í kvöld ætla ég að borða góðan mat og fá mér hvítvín með Johonnu (sem ég bý með) og kærastanum hennar, svo kanski eitthvað út.

Fundum Bleikar og svartar sígarettur með súkkulaði og vanillu bragði :-)

Les Halles







Já þetta eru dauðar rottur ef þið eruð eitthvað í vafa :-/
Typpabrauð!!Gatan mín

Tuesday, December 01, 2009

Veik!

Mér tókst að ná í flensuna því miður! Kanski ekki skrítið þar sem 2 af 3 stelpum sem ég bý með eru búnar að vera veikar líka..

Nastya (ein af þeim sem ég bý með) dróg mig með sér í apótekið og lét mig kaupa allskonar lyf, hóstasaft o.fl. Þannig þetta ætti að vera farið áður en ég veit af. Þangað til er ekkert annað að gera en að liggja uppí rúmi þegar ég má vera að!

Annars bara 2 vikur í ÍSLAND! Hlakka svo til!