Núna erum við flutt aftur! Mér tókst að finna mjög fína íbúð fyrir okkur á Nörrebro viku áður en við þurftum að flytja úr hinni. Smá stress í gangi, en það tókst :-) Höfum þessa út ágúst, svo verður restin seinni tíma vandamál, reynum að plana bara nokkra daga eða viku fram í tímann. Mjög skrítin/óþægileg tilfinning á köflum en það venst, stundum er það bara meira spennandi að vita ekkert hvað er framundan ;-) Matti vinur okkar býr svo hjá okkur í dáldin tíma núna, svo við erum 4 á heimilinu, stundum fleiri. Það er bara gaman, virkar mjög vel. Við vorum ekki með þvottavél í seinustu íbúðinni okkar og svo náttúrlega ekki í þessari heldur. Svo við ákváðum að núna væri komin tími til að fara á þvottastöð, átti mjög takmarkað af hreinum fötum eftir. Ætluðum að fara á fræga íslenska kaffihúsið Laundromat sem er með þvottavélar. En það var náttúrlega allt upptekið þar, þannig við enduðum á venjulegri þvottastöð neðar í götunni.
.jpg)
.jpg)
Þurftum að búa til þvottasnúrur um alla íbúð til að hengja fötin okkar hehe..
.jpg)

OG við erum með Sturtu í eldhúsinu!!! ;-)
2 comments:
hahaha...SNilld :)
maður verður að redda sér ;-9
Post a Comment