Wednesday, August 19, 2009

"Today is the first day of the rest of your life.”

Í dag var góður dagur veðurlega séð loksins. En það er búið að vera mjög lítið um sólardaga í þessum seinniparti sumars hérna í Danmerku. Eyddum eiginlega mest öllum deginum í ørstedsparken sem að mínu mati er miklu fallegri en Kongens Have, hann er líka bara hinum megin við Nørreport. Kíktum svo í Vintage búðir, en hverfið okkar er fullt af antik og vintage búðum. Gæti eytt fleiri tímum í þeim. Annars erum við enn og aftur að leita af íbúð í Köben, ætlum að framlengja dvölina okkar hér aðeins lengur, virðist vera það sniðugasta í stöðunni núna. Annars get ég ekkert sagt til um framhaldið því ég einfaldlega veit ekki sjálf hvernig þetta verður. Núna hugsa ég 2 vikur fram í tímann í mesta lagi..







1 comment:

Osp said...

skemmtilegt ad fylgjast med ther saeta!:) skemmtilegar myndir...veit alveg hvad thu meinar thegar thu segir ad thu getur ekki planad almennilega eda akvedid langt fram i timann, eg er i sama pakkanum! annars er allt gott hedan, gott ad hitta fjolskylduna og fint ad vinna herna:)kys