Á föstud. fórum við Gróa á Henrik Vibskov sýninguna, Matti var líka að sýna á henni, því enn meiri ástæða fyrir að fara. En þetta var án efa ein flottasta tískusýning sem ég hef séð. Þetta var í einhverjum skógi rétt hjá dýragarðinum. Rosalega flott sett upp með lýsinguna, tónlistina o.fl. Passaði allt inní þessa dularfullu stemmningu sem var þarna, það besta var samt að það voru þrjú módel sem stóðu og héldu á ösnum. Einn asninn var alveg að missa sig alla sýninguna og grey módelið þurfti að berjast við að halda í hann! haha.. Kvöldið endaði svo á Jolene. Erum nánast orðnir fastagestir þar núna eftir að Sigurjón byrjaði að vinna þar, sem fylgir ýmsum fríðindum ;-) Þar sem þetta er seinasta helgin hjá Matta og Védísi í DK ákváðum við að fara öll út að borða í gær. Gróa og Sigurjón voru svo að fara að vinna, þannig ég, Matti og Védís fórum saman á djammið. Ég dró þau með mér í tískupartí sem Cover var að halda, sem átti víst að vera eitt af stærstu partíunum í sambandi við tískuvikuna í gær, sem var svo ekkert spes fannst okkur. Þannig leiðin lá á Jolene aftur :-)
No comments:
Post a Comment