Tuesday, October 13, 2009

The XX´S

Orðið dágóður tími síðan ég skrifaði hér inná síðast, ætlaði nú samt bara að skella tveimur af nýju uppáhaldslögunum mínum hér inná áður en ég fer að sofa. Update verður að bíða betri tíma. En The XX er nýja uppgötvunin mín. Mjög öðruvísi band, áhugaverð tónlist en rosalega flott finnst mér, líka mjög ungir krakkar, þau eru að túra núna og er uppselt á mjög marga tónleika hjá þeim. Þannig það má segja að það gangi bara nokkuð vel hjá þeim skiljanlega :-)

Annars er ég farin að hlakka til að koma heim í snjóinn í nóv-des, haustveðrið í DK er ekki alveg að gera sig! Það verður samt stoppað í Berlín fyrst og svo líklega London. En ég er alltaf á síðasta snúning með plönin, þannig þetta verður að koma í ljós, þetta "reddast" eins og sagt er á góðri íslensku.


3 comments:

óLöf Rut said...

ójá þau eru svo kúúl!

Kristín Larsd. Dahl said...

þau lúkka nú samt ekkert voðalega kúl finnst mér. Miðað við myndirnar sem ég hef séð eru þau soldið lummó :-/ En geðveik tónlist! Þarf ekki að vera neitt samhengi þar á milli :-)

Gróa Sif said...

vá fyndið ég uppgvötaði þau akkurat þegar ég var nýkomin til Spánar;) Sá svo bara bloggið þitt nuna :)

En þetta er mjög töff tónlist og mjög öðruvísi

Gangi þér vel í London og öllu sem er að koma