Monday, October 19, 2009

Heart of Stone

Loksins er allt komið á hreint! Var að enda við að panta flug, rútur o.sfrv. En 6 nóv. förum við til Berlínar yfir eina helgi. Förum í 7 tíma rútuferð og á skip. Svo þann 9 nóv. held ég ein til London ;-) Ætla að vera þar held ég bara út nóv. á eftir að panta flugið heim fyrir jólin. En ég hlakka svo til að sjá stelpurnar!! og vera í London aftur. Ætla virkilega að reyna að upplifa London í þetta skiptið, ekki eins og seinast þar sem ég eyddi mestum tímanum í Topshop og í öðrum búðum á Oxford st. :-/ Sá ekki einu sinni Big Ben hehe..

Tók þessa mynd út um gluggan úr stofunni okkar um daginn. Frekar næs garður sem við erum með :-)


Hér er annars lag með Raveonettes af nýju plötunni þeirra sem kom út núna í byrjun mánaðarins. Ágætis plata, hinar eru samt betri, annars þarf ég að hlusta betur á hana. Lögin þeirra eru oft þannig að maður þarf að hlusta mikið á þau til að fýla þau betur finnst mér :-)

No comments: