Monday, November 23, 2009

Mánudagur

Strax búin að vera hérna 8 daga! Vá tíminn flýgur!! En hérna eru myndir frá gærdagnum og í dag :-)

.....

Petra & ég kíktum í vintage búðir í hotel de ville...

Angelique & Ég vorum saman í myndatöku í gær. Eftir að hárgreiðslumaðurinn hafði hárreytt mig í næstum 5 TÍMA!! Var þetta ein af þremur greiðslunum sem ég fékk...

Þetta var besta myndin sem ég náði á hlaupunum í dag af hliðinu fræga.

Emma Tsirk!

Nammi!!!

Í Metro ALLTAF í metro!!

Elie Saab! Flottustu kjólar sem ég hef séð! Hefði viljað fá nærmynd af þeim öllum! :-(

Emma og kærastinn hennar Flo

Friday, November 20, 2009

París!

Nú er ég næstum búin að vera í París í viku og líst rosalega vel á borgina! Þó ég hafi ekki haft neinn tíma ennþá til að skoða hana almennilega. Búið að vera rosalega mikið að gera alveg síðan ég kom. Er ennþá að venjast þessu. En þetta er rosalegt stress og álag, erfiðara heldur en ég hafði ímyndað mér. En síðan ég kom er ég búin að powerwalka 7-9 tíma um París á dag!! Þar sem ég er ekki vön að hlaupa um svona og stressa mig held ég að líkaminn minn sé í einhverju hálfgerðu sjokki. En stelpurnar sem ég bý með segja að þetta sé svona fyrst og svo venjist þetta með tímanum, sem það náttúrlega gerir. Var búin að hlakka til að geta slappað aðeins af um helgina og skoðað París en svo fékk ég að vita áðan að ég þarf að fara í myndatöku laugard. og sunnud. :-/
Ætla samt að kíkja aðeins með stelpunum í second hand búðirnar á morgun, en þær eiga víst að vera geðveikar hérna og frekar ódýrar!! Get ekki beðið!!


Rue Du Laos, gatan sem ég bý á.


Emma sem ég bý með (Minnir mig stundum á Lily Cole!?)


Okkur brá frekar mikið þegar við sáum konuna í dag skera í dauðu kanínurnar! Svo geng ég sjálf um með kanínu um hálsinn :-(


mmm....


Lag vikunnar:

London

Ég elska London!! Alltaf jafn gaman að koma þangað í heimsókn til stelpnanna! Gæti nú vel hugsað mér að búa þar í einhvern tíma. Kanski ég hermi eftir vinkonum mínum og fari í skóla þar einhvern daginn. Ef ég á einhvern tímann eftir að ákveða hvað mig langar að læra!

Þó ég hafi nú bara stoppað stutt í London náði ég nú samt að gera heilmikið ;-)




Sá loksins Big Ben og fleira!

Marsý plataði mig í myndatöku fyrir sig. Myndirnar voru teknar í gömlum kirkjugarði sem reyndist svo vera algjör gaycruise!



Í sveiflu! Marsý aftur ljósmydarinn...

Oxford Street!

Þetta var svo gott Sushi!






Takk fyrir mig stelpur ♥

Thursday, November 19, 2009

Meira Berlín

Var í Berlín í byrjun nóv. með Sigurjóni og hans fólki. Hef bara ekki haft tíma fyrr en núna að setja inn myndirnar. Vorum þar föstud. til mánud. Æðisleg helgi í æðislegri Borg. Berlín er svo falleg á þessum tíma líka. En þetta er í annað skiptið sem ég heimsæki Berlín og er hún orðin ein af mínum uppáhalds borgum.









Friday, November 06, 2009

Berlín

Þá er ég loksins komin til Berlínar, eftir 8 tíma rútuferð og siglingu. Vaknaði kl 4 í morgun eftir að hafa sofið í ca. 2 tíma! Ég er svo búin á því núna að það eina sem ég meika að gera er að fara í heitt bað á hótelherberginu mínu (sem er meganæs ;-)) og svo að sofa!!!
Á Skipinu í dag (skítakuldi!)


Gute Nacht

Sunday, October 25, 2009

Coming up...

Hornbæk

Berlín

London

París

oog svo Heim :-)

Thursday, October 22, 2009

We ♥ it

Það er orðið kalt í DK og mér langar meira en allt að vefja mig inn í nýjan pels! Ætla gera góða leit af honum í London ;-)





myndirnar eru teknar af http://weheartit.com/
snilldar síðar með fullt af flottum myndum ;-)

♥♥♥♥

Monday, October 19, 2009

Heart of Stone

Loksins er allt komið á hreint! Var að enda við að panta flug, rútur o.sfrv. En 6 nóv. förum við til Berlínar yfir eina helgi. Förum í 7 tíma rútuferð og á skip. Svo þann 9 nóv. held ég ein til London ;-) Ætla að vera þar held ég bara út nóv. á eftir að panta flugið heim fyrir jólin. En ég hlakka svo til að sjá stelpurnar!! og vera í London aftur. Ætla virkilega að reyna að upplifa London í þetta skiptið, ekki eins og seinast þar sem ég eyddi mestum tímanum í Topshop og í öðrum búðum á Oxford st. :-/ Sá ekki einu sinni Big Ben hehe..

Tók þessa mynd út um gluggan úr stofunni okkar um daginn. Frekar næs garður sem við erum með :-)


Hér er annars lag með Raveonettes af nýju plötunni þeirra sem kom út núna í byrjun mánaðarins. Ágætis plata, hinar eru samt betri, annars þarf ég að hlusta betur á hana. Lögin þeirra eru oft þannig að maður þarf að hlusta mikið á þau til að fýla þau betur finnst mér :-)

Thursday, October 15, 2009

Gamalt & Gott

Ég hef alltaf ELSKAÐ að skoða gamlar ljósmyndir! ég veit ekki afhverju, hvort það sé að rifja upp gamlar minningar eða þá einfaldlega að gamlar ljósmyndir eru miklu flottari! Sem betur fer eru filmumyndavélar orðnar vinsælar aftur, finnst allir vera nota þannig núna, bæði atvinnuljósmyndarar og ekki.
En ég er mjög heppin að eiga mömmu sem elskaði að taka myndir og tók hún alveg heilan helling af mér og bróðir mínum þegar við vorum yngri. Ég er endalaust þakklát henni fyrir að hafa tekið svona mikið af myndum af okkur því eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að taka fram alla kassana og skoða...
Hér koma nokkrar af mínum uppáhalds, teknar í Mílanó, Íslandi, Danmerku, Portúgal o.fl.

Portúgal

Afi og Amma


Ég á 1 árs afmælinu mínu



Ég var frekar fýldur krakki og þá fékk ég þennan svip! Sem var frekar oft var mér sagt :-/

Kongens Have

Stefán bróðir var hinsvegar alltaf hress


Ég í Mílanó



Lisbon Portúgal (ég, stefán & pabbi)






Mamma & ég